Sunday, September 28, 2014

Rokkjötnar

Ég skellti mér á Rokkjötna um helgina með vel völdu fólki.
Dagurinn var tekinn frekar snemma en það var mæting hjá systir minni 
kl. 14:00 í súpu, brauð og eins og einn öl !
Eftir að hafa slammað ofan í súpuna, drukkið brauðið og borðað ölið 
lá leið okkar í Vodafone höllina.

Ástæðan fyrir því að ég var að fara þarna var aðallega útaf 
fólkinu sem var að fara með mér, en það var hópurinn 
sem fer alltaf saman á Bræðsluna s.s. Bræðsluvinafélagið.
Ég hlusta ekkert mjög mikið á rokk, en einstaka hljómsveitir fýlaði samt sem áður.
Brain Police, Dimma og Sólstafir stóðu algjörlega uppúr að mínu mati.


 Rokkaradressið
Samfestingur - Lindex (homewear)
Hattur - Six
Skór - Focus
Brain Police

Þangað til næst

-RG


No comments:

Post a Comment