Monday, September 22, 2014

iittala

Ég hef aldrei verið eitthvað húkt á einhverri einni hönnun og skildi aldrei ittala æðið hér forðum þegar maður fór varla inn á heimili án þess að þar væru, ja allavegana fjórar iittala maribowl skálar. 
En það breyttist heldur betur þegar að Kastehelmi línan kom frá þeim, það er sko minn tebolli get ég sagt ykkur, ætli það sé ekki þetta retro look sem heillar mig svona, því retro stíllinn er mitt uppáhald.

Æðið byrjaði nú hægt, en ég fékk einn stjaka og eina skál í jó lagjöf, og urðu þessir tveir hlutir strax mínir uppáhalds! Svo hefur nú heldur betur bæst í safnið hjá gömlu, og er ég hvergi nærri hætt!

Elska þennan nýja lit (cranberry)
Grey og Salmon pink

Stjakarnir á bakkanum eru Sand og Seville Orange
Og skálarnar Sand og Grey 

Ég fékk líka Salmon pink skál um daginn en hún var gölluð og þær 
uppseldar þannig að ég bíð spennt eftir næstu sendingu :)

Þangað til næst

-RG




No comments:

Post a Comment